Primo plast og ál gluggar
Allir kostir plastsins, í þínum lit
Það besta úr báðum heimum
Plast og ál gluggarnir frá Primo gefa þér besta úr tveimur heimum: alla kosti Primo plastsins að innan og fallega duftlakkaða álprofíla að utan í þeim lit sem þú óskar eftir.
Árið 2006 þróaði Primo þessa gluggalausn sem í dag er einn vinsælasti vöruflokkurinn þeirra. Niðurstaðan er fallegur og endingargóður gluggi sem lítur jafn vel út eftir 20 ár og á uppsetningardegi.
Afhverju plast og ál?
Plast er aðeins framleitt í hvítum lit. Til að gefa plastgluggunum lit hafa framleiðendur prófað þrjár aðferðir; litun, filmu og málningu, sem allar hafa takmarkaðan líftíma og falla með tímanum.
Primo-lausnin er önnur: dufflakkaðir álprófílar eru límdir utan á plastgluggann. Þetta gefur fullkomið litaval með sömu endingarsemi og í venjulegum álgluggum, án þess að fórna einangrun eða þeim eiginleikum sem gera plast góðan valkost þegar kemur að gluggum.
Plast og ál eða Tré og ál?
Bæði gefa sama útlit að utan. Munurinn er að innanverðu: plast/ál er hvítt plast (RAL 9016) sem þarfnast aldrei málningar. Tré/ál þarf að mála að innan á einhverjum tímapunkti.
Plast/ál er sérstaklega hentugt fyrir allar tegundir húsnæðis s.s skóla, stofnanir, sjúkrahús og sumarhús, þar sem slitlag er mikið og viðhaldskostnaður skiptir máli.
Helstu eiginleikar
• Litaval: 10 staðlaðir litir án álags eða yfir 200 RAL-litir sé þess óskað
• Að innanverðu: Hvítt plast (RAL 9016) sem þarfnast aldrei málningar
• 9-kammera uppbygging: Sama framúrskarandi einangrun og í plastglugga
• Stálstuðningur: Í öllum körmum og römmum á öllum 4 hliðum
• 3-laga gler: Lágorkugler er staðall hjá Primo
• Viðhald: Nær ekkert, aðeins reglulegur þvottur
Veldu þinn lit
Utandyra getur þú valið milli 10 staðlaðra Primo-lita. Vinsælustu litirnir eru: Hvítur (RAL 9016), Antrasít (RAL 7016), Svart (RAL 9005) og Mökkbrúnt (RAL 8017). Þú getur einnig valið úr 200 RAL-litum sé þess óskað.
